Þorrablót 2012

Kæru Íslendingar í Óðinsvéum og nágrenni!
Allir að taka frá 11.Febrúar 2012 því þá verður Þorrablót Íslendingafélagsins í Odense haldið með pomp og prakt í Marslev-Holev forsamlingshus.
Örn Árnason mun skemmta fólkinu með sinni tærri snilld yfir matnum og ætla VINIR SJONNA að koma og halda uppi fjörinu á ballinu, það verður engin svikin(n) þegar þessir strákar eru annars vegar;)

mun skaffa þorramatinn með sinni tærri snilld eins og í fyrra. Viljum við minna þá á sem að borða ekki þennan snilldarþorramat, að það verður LAMBALÆRI og HANGIKJÖT líka á boðstólunum. Þannig að allir ættu að fá eitthvað við sitt hæfi.

Miðasalan er hafin og lýkur henni 9. Februar 2012, en til að ná sér miða á ódýrari verði er um að gera að stökkva af stað.

Verð í forsölu ( 3. Januar – 22.Janúar 2012)
Félagsmenn 350.-
Ekki félagsmenn 500.-

Verð ekki forsala: ( 23. Janúar – 9. Februar)
Félagsmenn 400.-
Ekki félagsmenn 550.-

Félagsgjaldið er 120.- ( sept ´11 – sept ´12)

Miðasala verður á eftirfarandi stöðum :
Elva Björk , Østergårdsparken 16, Fraugde, tlf.6178 6006
Hrabba , Østerdalen 3cd, Skt.Klemens, tlf.4033 3693
Berglind, Elmelundsvej 4, íbúð 1605 , Rasmus Rask Kollegi, tlf.2154 8234

Happadrættið verður á sínum stað og eru vinningarnir ekki af verri endanum:
Æskan Gallerí Gló,

Allt á fullu í undirbúning, verður frábært kvöld þannig að um að gera að taka daginn/kvöldið frá ;)

Þið verðið ekki svikin(n) með stærstu skemmtun ársins, það hefur hingað til aldrei neinn verið það :-)

Mestu stuðkveðjur frá
Þorrablótsnefnd IFO 2012

No Comments

Jólaball 26.des.

Hið árlega jólaball IFO verður haldið þann 26.desember í Hjallese kirkju, sama stað og alltaf, klukkan 14:00.

Síðustu ár hefur fjöldinn á þessa skemmtun aukist og hefur síðustu tvö ár verið mjög þröngt á þingi, og til að sporna við þessu verða smá breytingar í ár.
Fyrsta breyting er sú að aðeins félagsmenn og fjölskylda þeirra geta komið á jólaballið, hægt verður að borga félagsgjöld við hurðina.

Svo áætlum við að fá að setja jólatréð á sama stað og í fyrra og munum við byrja þar um klukkan 14:15 með því að dansa kringum það. Það er svo aldrei að vita nema einn af rauðklæddu bræðrunum kíki í heimsókn.

Síðast verður svo kaffi og viljum við byðja að þeir sem ætla vera með í kaffinu að komi með einhvað smávegis á kaffiborðið, t.d. brauð, kökur, smákökur, snúða o.s.frv. IFO býður upp á kaffi og saftvatn, og svo verður hægt að kaupa aðra drykki í sjoppunni sem verður á staðnum með ýmist góðgæti frá Íslandi.

Jólakveðjur,
Stjórn IFO.

No Comments

Skötuveisla IFO

Þá líður að hinni árlegu skötuveisla ÍFÓ og verður hún haldin þann 10.desember í Grænlendingahúsinu, Hunderupvej 61, milli klukkan 18:00 til 20:00. Það er um að gera að flýta sér að panta þar sem vanalega komast færri að en vilja.

Pantanirnar verða að berast í síma 27 50 76 94 eða email ifodense@hotmail.com.

Á boðstólnum verður skata, saltfiskur, fiskibollur, og harðfiskur

Meðlæti er íslenskt rúgbrauð, kartöflur, hamsatólg, og smjör.

Verð er 150kr,- fyrir fullorðna og 60kr,- fyrir börn. Verð fyrir félagsmenn er 90kr,- og frítt fyrir félagsbörn.

EF einhver afgangur verður eftir eftir veisluna þá verður hann seldur á niðursprengdu verði.

Kveðja,

Stjórn IFO.

No Comments

Jólapakkar til Íslands

Ertu búin að kaupa allar jólagjafirnar og ert að spá í hvernig þú ætlar að koma þeim til Íslands?

IFO ætlar að bjóða félagsmönnum sínum upp á einn möguleika!!!
Málið er þannig að Eimskip er að bjóða upp á að taka við jólapökkum sem þurfa að komast frá Danmörku til Íslands og fara þeir með DET 1-47  föstudaginn 2.desember og verða pakkarnir á Íslandi 6.desember.

IFO ætlar að bjóða félagsmönnum sínum upp á að taka við pökkum og koma þeim til Aarhus.

Móttaka pakka skal gerast hjá Íslendingafélaginu í Odense fyrir 27.nóv hjá:
Áslaug Ýr Jóelsdóttir

Fløjelsgræsset 21
5220 Odense SØ, Fraugde
Sími: 23 11 02 90
Kostnaður per sendingu (kassa) er 430 DKK og hámarksþyngd er 20 kg. Andvirði fyrir hverja gjöf má ekki vera meira en 10.000 ISK en heildar andvirði  sendingarinar er ótakmarkað. Ef óskað er eftir því að sendingin haldi áfram innanlands þegar hún er kominn til Íslands þá kostar það auka 100 DKK.
Áður en þú kemur með pakkann þá máttu fylla út flutningsfyrirmælin, sjá hér.

Ef þú vilt sjálf(ur) sjá um að koma sendingunni til Aarhus þá er hægt að skoða upplýsingar hér.

Kveðja,
Stjórn IFO

No Comments

Laufabrauð og piparkökumálun

Skráningu lýkur 30. nóvember

Laugardaginn 10.desember ætlar Íslendingafélagið að endurtaka laufabrauðsgerð fyrir félagsmenn sína í samkomuhúsi Tornbjerg kirkju, Skærmhatten 1, 5220 Odense  kl. 12:00. Munið eftir litlum hnífum og brettum.

Boðið verður upp á piparkökur, kaffi, djús og ljúfa íslenska jólatónlist.

Það verður piparkökumálun fyrir börnin með tilbúnum piparkökum

Þeir sem hafa áhuga á að vera með skulu senda póst á roms@ru.is og taka fram fjölda þátttakenda , börn og hversu margar kökur á að panta. Við pöntum svo laufabrauðskökur frá Íslandi.

Laufabrauðskökur(10 kökur) 50kr.

Kveðja,

Stjórnin.

, ,

No Comments

Unglingakeila – diskókeila

Keila fyrir 12 til 16 ára unglinga verður haldin í BowlNfun föstudaginn 23. september klukkan 22:00. Þetta er diskókeila og er mæting klukkan 21:45. Það verður skipt niður á brautir á staðnum þannig að ekki mæta of seint.

Það verður að skrá sig fyrir 21. september svo hægt sé að fá fleiri brautir en það er búið að taka frá tvær brautir fyrir 10-12 þátttakendur.

Skráning fer fram með því að senda póst á roms@ru.is.

Frítt er fyrir unglinga í Íslendingafélaginu en 50 kr,- fyrir aðra. Þetta er verð með skóleigu.

Hlökkum til að sjá ykkur,

Stjórn IFO.

, ,

No Comments

Kvennaköld 8 okt.

Hollywood Kvennakvöld Íslendingafélagsins

Verður haldið í Brevduernes hus, Christmas Møllers V. 17, Bolbro, þann 8 okt.

Húsið opnar kl 18:00 og hefst borðhald kl 18:30.

Boðið verðu upp á fordrykk, hlaðborð með Hollywood ívafi, fjölbreytt skemmtiatriði og mikið fjör  :)

Miða verð í forsölu er 250 kr. fyrir félagsmenn en 400 kr. fyrir aðra. Forsölu líkur 3 okt. og hækkar verðið um 50 kr. eftir að forsölu líkur.

Hægt er að nálgast miða hjá:

Berglindi á Rasmus Rask sími :21 54 82 34
Erna Centrum: 29 85 08 83
Hrafnhildur St. Klemens: 40 33 36 93
Áslaug Fraude: 23 11 02 90

No Comments

Kynningardagur

Kynningardagur Íslendingafélagsins í Odense (IFO) verður haldinn laugardaginn 3. september í Brændekilde Forsamlingshusn Møllegyden 6, Brændekilde 5250 Odense SV

Dagskráin hefst kl 13:00 fyrir börn og fullorðna þar sem verður boðið upp á pylsur, djús og kaffi. Fram fer kynning á stjórn félagsins og hvað verður í boðið hjá félaginu á næsta félagsári (sept.-sept.). Eftir kynninguna verður svo skemmtun fyrir börnin, leikir, diskó og fleira skemmtilegt.

Um kvöldið eða kl.21:00 mun DJ Atli  þeyta skífum og haldi uppi geggjuðu stuði og stemmingu langt fram á nótt.
Eftir fjörið eða klukkan 02:00 kemur svo rúta og keyrir gesti i Odense centum.

Látum okkur ekki vanta á þessa fystu skemmtun IFO á þessu félagsári.

Komum og kynnum okkur hvað er í boði á næsta félagsári og skemmtum okkur eins og Íslendingum er einum lagið.

Kveðja, Stjórn IFO.

P.s einnig má minna á það að ’’besta’’ íslenska sjoppan í danmörku verður á staðnum með íslenskt góðgæti.

No Comments

17. Júní

Hæ hó og jíbýje það er komin 17.júní.

Íslendingafélagið ætlar að halda upp á 17.júní í Fruens Bøge. Og vonast til að sjá sem flesta Íslendinga þar til að fagna með okkur. Hátíðin byrjar kl 15:00 og stendur til kl 18:00. Og verður svona piknik stemming á þessu hjá okkur, þannig að endilega komið með teppi með ykkur, svo við getum hyggað okkur saman.

Ætlum við að hafa fótbolta leik á milli barna og fullorðna.

Félagið býður Félagsmönnum upp á grillaða SS pylsu og gos. Einnig verður hægt að kaupa grillaðar SS pylsur og gos.
Sjoppan verður á staðnum með íslenskt nammi, fána og snuð.

Vonumst til að sjá sem flesta til að gera þennan dag sem skemmtilegastan fyrir okkur öll.

kv Stjórnin.

No Comments

Havnekulturfestival

Nú geta allir kynnt sér dagskrá Odense Havnekulturfestivalsins sem verður helgina 27. – 29. maí 2011 á heimasíðu festivalsins: http://havnekulturfestival.dk/

Íslandskynning verður á “Græsplænen á Byens Ø“ eins og það kallast, ásamt félögum frá Grænlandi og Færeyjum. Að auki verður margt í boði alla helgina fyrir alla fjölskylduna, s.s handverk, list og hönnun, matur, vatnabubbles, minigolf, allskyns tónlist og dans svo eitthvað sé nefnt. Boðið verður upp á reiðtúr fyrir börnin á íslenska hestinum sunnudaginn 29. maí frá kl. 13:00 – 15:00.

Endilega kynnið ykkur dagskrá helgarinnar því allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Bestu kveðjur, nefndin.

No Comments