Archive for February, 2010
Þorrablót/ball
Þorrablót IFO er haldið 27.febrúar í Højby forsamlingshus, sama stað og fyrri ár.
Þeir sem hafa tryggt sér miða geta tekið rútu, sem kostar litlar 30kr á mann, sem keyrir um alla Odense, sjá rútuplan:
Rasmus Rask Kollegi 17:15
Danske bank Næsbyhovedvej 1 17:25
Rutebilstationen Dannebrogsgade 17:50
Shell Hjallesevej / Jagtvej 18:00
Texaco Hjallesevej / Landbrugsvej 18:10
Statoil Odensevej / Svendborgvej 18:15
Fraugde (Fraugde Radby vej / Fløjlsgræsset) 18:25
Højby 18:35
Húsið opnar 18:00 og byrjar borðhald rúmlega klukkustund síðar.
Þeir sem ekki hafa pantað sér miða á blótið sjálft geta keypt sér miða á ballið við inngang og kostar það 150 dkk. Húsið opnar fyrir þá sem ætla á ballið kl.22:30.
Íslenzka sveitin heldur uppi fjörinu fram á nótt, og klukkan 02:30 kemur rútan aftur og keyrir sama rúnt til baka og er sama verð.
Munið að taka með ykkur pening, þar sem við tökum ekki við kortum.
Hlökkum til að sjá ykkur á blótinu/ballinu Þorrablótsnefnd IFO 2010Heimsbikarmót 2010
Heimsbikarmót 2010 í tölti íslenska hestsins verður haldið í Arena Fyn (Odense Congress Center) helgina 19-21 febrúar. Flottir Stóðhestar stórkostleg folöld og fallegar hryssur verða á staðnum. Meðal annars verður Keilir frá Miðsitju sem kemur ásamt fjórum afkvæmum, einnig koma Jarl frá Miðkrika, og Lykill frá Blesastöðum 1A.
Verð:
Föstudagur kr. 80,-
Laugardagur kr. 310,-
Báðir dagar kr. 280,-
Sjá nánari upplýsingar hér.
Sprengidagur

Sprengidagur verður haldin Laugardaginn 13.febrúar í fælleshúsinu í Skt.Klemens, Skt. Klemens vej 101, milli klukkan 18:00 til 21:00. Takmarkað magn er í boði og því er um að gera að flýta sér að panta sæti. Pantanirnar verða að berast í síma 27507694 eða email ferrari@internet.is.
Verð:
Utan félagsmenn 85Kr.-
Félagsmenn 60Kr.-
Kveðja, Stjórn IFO.
Öskudagur/Fastelavn
Þá er komið að því að ”marséra” í grímubúningum og slá köttinn úr tunnunni.Öskudagurinn verður haldinn hátíðlegur hjá IFO á laugardaginn 13.feb. í fælleshúsinu í skt.klemens, Skt. Klemens vej 101.
Mæting er klukkan 14:00 og byrjum við á því að slá köttinn úr tunnunni ca.15 mín. seinna. Við verðum með 3 tunnur til að slá úr, pappírstunnu fyrir þau yngstu 2 – 4 ára, trétunnu fyrir 4 – 7 og 7 – X.
Þegar búið er að slá köttinn úr tunnunni, þá setjums við niður og fáum okkur kaffi. Við viljum byðja sem flesta að koma með eitthvað á kökuborðið, en ekki láta það stoppa þig í því að koma ef þú kemst ekki með neitt.
IFO býður upp á kaffi og saftvatn, og svo verður sjoppan á staðnum með aðra drykki og nammi til sölu.
Verð á barn er 20,-dkk en frítt er fyrir börn sem eru félagsmenn.
Með von um að sjá sama fjölda og á jólaballinu.
Kveðja,
Stjórn IFO.
Pókermót

Pókermótið verður haldið í fælleshúsinu Skt. Klemens, Skt.Klemens vej 101, föstudaginn 12.febrúarklukkan 20:00, og spilað verður í Texas Hold’em stíl (eins og vanalega).
Verðlaunin verða:
1.verðlaun eru 30% af pottinum og fallegur bikar til að setja upp á hillu í stofunni ![]()
2.verðlaun eru 20% af pottinum.
3.verðlaun eru 10% af pottinum.
Spilað verður á 5-6 borðum í fyrstu umferð og fara svo vinningshafar á hverju borði yfir á úrslitaborðið og keppa um aðalverðlauninn.
Reglur:
Stóri og litli blindur byrja í 5 og 10 í fyrstu umferð, en 25 og 50 í úrslitum.
Stóri og litli blindur hækka um eitt peningagildi eða helming á 10 mín. fresti.
Eina svarið við All-in er All-in, en aldrei er hægt að vinna meira en maður er sjálfur með á hendi. Það þýðir að ef einhver sem á lítið af peningum segir All-in og næsti á eftir á meiri pening þá verður hann að setja All-in. Þar með er hann að taka þá áhættu að kannski kemur sá næsti á eftir honum með meiri pening en hann og settur All-in á móti honum.
Ef þú átt ekki efni á minnstu gjöf þá getur þú ekki sagt All-in, þá er eingöngu hægt að spila með.
Mótsgjald:
100 fyrir félagsmenn
150 fyrir aðra
Frítt fyrir áhorfendur
Með von um að sjá sem flesta.
Kveðja, Stjórnin.


