Archive for February 8th, 2010

Sprengidagur

saltkjot og baunir

Þá er komið að því að borða á sig gat, og hvað er betra til þess en að fá sér góðan skammt af saltketi og baunum!?!
Sprengidagur verður haldin Laugardaginn 13.febrúar í fælleshúsinu í Skt.Klemens, Skt. Klemens vej 101, milli klukkan 18:00 til 21:00. Takmarkað magn er í boði og því er um að gera að flýta sér að panta sæti. Pantanirnar verða að berast í síma 27507694 eða email ferrari@internet.is.

Verð:
Utan félagsmenn 85Kr.-
Félagsmenn 60Kr.-

Kveðja, Stjórn IFO.

, ,

No Comments

Öskudagur/Fastelavn

FestelavnÞá er komið að því að ”marséra” í grímubúningum og slá köttinn úr tunnunni.
Öskudagurinn verður haldinn hátíðlegur hjá IFO á laugardaginn 13.feb. í fælleshúsinu í skt.klemens, Skt. Klemens vej 101.
Mæting er klukkan 14:00 og byrjum við á því að slá köttinn úr tunnunni ca.15 mín. seinna. Við verðum með 3 tunnur til að slá úr, pappírstunnu fyrir þau yngstu 2 – 4 ára, trétunnu fyrir 4 – 7 og 7 – X.
Þegar búið er að slá köttinn úr tunnunni, þá setjums við niður og fáum okkur kaffi. Við viljum byðja sem flesta að koma með eitthvað á kökuborðið, en ekki láta það stoppa þig í því að koma ef þú kemst ekki með neitt.
IFO býður upp á kaffi og saftvatn, og svo verður sjoppan á staðnum með aðra drykki og nammi til sölu.
Verð á barn er 20,-dkk en frítt er fyrir börn sem eru félagsmenn.

Með von um að sjá sama fjölda og á jólaballinu.
Kveðja,
Stjórn IFO.

, , ,

No Comments

Pókermót

poker

Þá er komið að næsta pókermóti!!!!

Pókermótið verður haldið í fælleshúsinu Skt. Klemens, Skt.Klemens vej 101, föstudaginn 12.febrúarklukkan 20:00, og spilað verður í Texas Hold’em stíl (eins og vanalega).

Verðlaunin verða:
1.verðlaun eru 30% af pottinum og fallegur bikar til að setja upp á hillu í stofunni :-)
2.verðlaun eru 20% af pottinum.
3.verðlaun eru 10% af pottinum.

Spilað verður á 5-6 borðum í fyrstu umferð og fara svo vinningshafar á hverju borði yfir á úrslitaborðið og keppa um aðalverðlauninn.

Reglur:
Stóri og litli blindur byrja í 5 og 10 í fyrstu umferð, en 25 og 50 í úrslitum.

Stóri og litli blindur hækka um eitt peningagildi eða helming á 10 mín. fresti.

Eina svarið við All-in er All-in, en aldrei er hægt að vinna meira en maður er sjálfur með á hendi. Það þýðir að ef einhver sem á lítið af peningum segir All-in og næsti á eftir á meiri pening þá verður hann að setja All-in. Þar með er hann að taka þá áhættu að kannski kemur sá næsti á eftir honum með meiri pening en hann og settur All-in á móti honum.
Ef þú átt ekki efni á minnstu gjöf þá getur þú ekki sagt All-in, þá er eingöngu hægt að spila með.

Mótsgjald:
100 fyrir félagsmenn
150 fyrir aðra
Frítt fyrir áhorfendur

Með von um að sjá sem flesta.

Kveðja, Stjórnin.

,

No Comments