Archive for March, 2010

Páskabingó

Þá er að koma páskar og að venju þá verður páskabingó hjá IFO. Þetta árið verður Páskabingóið haldið í Tornbjerg kirkju laugardaginn næstkomandi, 27.mars. Húsið opnar klukkan 14:00 og verður fyrsta tala lesin klukkan 14:30. Til mikils er að vinna og koma vinningarnir frá Freyju og Nóa. Þeir sem eiga pöntuð egg geta komið á staðinn og nálgast eggin sín, einnig verður shoppan á staðnum með annað nammi. IFO býður upp á kaffi og djús en einnig er hægt að kaupa gos í sjoppunni.

Hlökkum til að sjá ykkur,

Stjórn IFO.

No Comments

Bjórkvöld

Næstkomandi laugardagskvöld þann 20.03 verður haldið bjórkvöld IFO. Okkur finnst komin tími til að við hittumst til að drekka saman þann yndislega mjöð kenndan við Albani. Bjórkvöldið verður haldið upp í Musikhúsinu upp á Raski, Elmelundsvej 4. Húsið opnar klukkan 20:00 og verður drukkinn mjöður frá Albani til klukkan 01:00.

Allir félagsmenn fá fríann bjór þegar þeir mæta. Einnig verður hægt að skrá sig í félagið á staðnum og fá allir þeir sem skrá sig einnig frían bjór.

Þar sem Aðalfundur er sama dag höfum við ákveðið að allir sem mæta á hann fá miða fyrir einum bjór sem gildir á Bjórkvöldinu.

Þegar við höfum drukkið fullnægju okkar af Albani mjöð, það er klukkan 01:00, þá getum við haldið för okkar á Ryan‘s. Þeir hjá Ryan‘s eru búnir að lofa okkur því að bjóða til sölu Íslenskan mjöð, Víking, þegar við mætum til þeirra eftir Bjórkvöldið.

Hlökkum til að sjá ykkur,

Stjórn IFO.

No Comments

Karlmenn og krabbamein

Drengir i odense, það má ekki mikið seinna vera. Upp með mottuna, myndina og veskið og látum ættingja, vini og aðra mottuelskendur heita á okkur. Þó ekki væri nema að vinna Horsens búa sem eru komnir í 40 þús kallinn (íslenskar).

Koma svo, þetta er nú bara rétt um hálfur mánuður til stefnu.
http://karlmennogkrabbamein.is/keppnin/keppandi?cid=1675

Ef þið eruð með mynd sendið hana á teddijonss@hotmail.com og hún verður set inn á guppuna okkar

kv
Siggi og Teddi

No Comments

Keila

Næstkomandi laugardag, 13. mars, verður farið í keilu fyrir börn og unglinga. Farið verður í Bowl n’ Fun, Grønløkken 3, og spiluð keila milli kl.11:00 og 12:00. Vegna þess hversu góð mæting var síðast höfum tekið frá 5 brautir og verður skipt niður á þær eftir aldursflokkum. Þar sem of margir voru á braut síðast höfum við ákvaðið að það verði hámark 5 á braut núna, til að vera viss um að fá pláss þá getið þið sent email á ifodense@hotmail.com og takið frá sæti. Til þess að við getum byrjað stundvíslega kl.11:00 þá þarf að mæta í síðasta lagi kl.10:45. Ef þið sjáið ykkur ekki fært um að mæta fyrir þann tíma, sendið þá email á ifodense@hotmail.com með nafni keppanda og aldur.

Frítt er fyrir félagsbörn en 50 kr,- fyrir aðra. Þetta er verð með skóleigu.

Hlökkum til að sjá ykkur,

Stjórn IFO.

,

No Comments

Aðalfundur

Aðalfundur Íslendingafélagsins í Odense fyrir árið 2010 verður haldinn 20. Mars næstkomandi. Fundurinn verður haldinn í Grænlendingahúsinu og byrjar hann klukkan 15:00.

Íslendingafélagið hefur verið í miklum vexti síðustu mánuði og frábært að vinna með þeim meðbyr sem hefur verið undanfarið. Frábært væri því að fá sem flesta til að mæta sem tilbúnir eru að hjálpa til með næsta starfsár. Okkur vantar til að mynda fólk í nefndir félagsins til að hjálpa við þá fjölmörgu atburði ársins sem félagið býður upp á.

Nefndir félagsins eru:

  • Fjölskyldunefnd
  • Íþróttanefnd
  • Skemmtinefnd
  • Þorrablótsnefnd

Það er alltaf hægt að gera gott félag enn betra, og því hvetjum við alla til að mæta og skrá sig til að hjálpa í þessar nefndir.

Allir sem mæta á fundinn fá bjórmiða fyrir einum bjór sem gildir á Bjórkvöld sem haldið er seinna um kvöldið uppá Raski.

Sjáumst hress þann 20. mars.

Kveðja,

Stjórn IFO.

,

No Comments

Páskaegg

Kæru félagsmenn,

Hægt er að panta páskegg frá Freyju í gegnum Íslendingafélagið í Odense.

Sjá verðlista hér.

 Hægt verður að panta egg til og með 11.mars. Pantanir sendast á ifodense@hotmail.com

Þeir hjá Freyju hafa sagt okkur að þeir reyna eins og þeir geta að pakka þessu vel inn en það er ekki 100% að við fáum þau óbrotin. Þannig að þetta er á eigin ábyrgð.

Með kveðju,

Stjórn IFOdense.

,

No Comments

Þorramatur

Þeir sem misstu af þorrablótinu þurfa ekki að örvænta!!!!

Það er til einhver afgangur að þorramat, það sem er til er:

  • Þorrabakkar 50 kr,-

(Pungar, Grísasulta, Súr blóðmör, og rúgbrauð)

  • Harðfiskur 300gr. 100 kr,-
  • Hákarl 150gr. 50 kr,-

Svo er einnig til:

  • Ýsa 2kg. 100 kr,-
  • Saltfiskur 2kg. 100 kr,-

Þeir sem hafa áhuga geta haft samband í síma

27 50 76 94.

Kveðja, Stjórn IFO.

,

No Comments