
Pókermótið verður haldið í fælleshúsinu Skt. Klemens, Skt.Klemens vej 101, föstudaginn 12.febrúarklukkan 20:00, og spilað verður í Texas Hold’em stíl (eins og vanalega).
Verðlaunin verða:
1.verðlaun eru 30% af pottinum og fallegur bikar til að setja upp á hillu í stofunni ![]()
2.verðlaun eru 20% af pottinum.
3.verðlaun eru 10% af pottinum.
Spilað verður á 5-6 borðum í fyrstu umferð og fara svo vinningshafar á hverju borði yfir á úrslitaborðið og keppa um aðalverðlauninn.
Reglur:
Stóri og litli blindur byrja í 5 og 10 í fyrstu umferð, en 25 og 50 í úrslitum.
Stóri og litli blindur hækka um eitt peningagildi eða helming á 10 mín. fresti.
Eina svarið við All-in er All-in, en aldrei er hægt að vinna meira en maður er sjálfur með á hendi. Það þýðir að ef einhver sem á lítið af peningum segir All-in og næsti á eftir á meiri pening þá verður hann að setja All-in. Þar með er hann að taka þá áhættu að kannski kemur sá næsti á eftir honum með meiri pening en hann og settur All-in á móti honum.
Ef þú átt ekki efni á minnstu gjöf þá getur þú ekki sagt All-in, þá er eingöngu hægt að spila með.
Mótsgjald:
100 fyrir félagsmenn
150 fyrir aðra
Frítt fyrir áhorfendur
Með von um að sjá sem flesta.
Kveðja, Stjórnin.


