Þorrablót IFO er haldið 27.febrúar í Højby forsamlingshus, sama stað og fyrri ár.
Þeir sem hafa tryggt sér miða geta tekið rútu, sem kostar litlar 30kr á mann, sem keyrir um alla Odense, sjá rútuplan:
Rasmus Rask Kollegi 17:15
Danske bank Næsbyhovedvej 1 17:25
Rutebilstationen Dannebrogsgade 17:50
Shell Hjallesevej / Jagtvej 18:00
Texaco Hjallesevej / Landbrugsvej 18:10
Statoil Odensevej / Svendborgvej 18:15
Fraugde (Fraugde Radby vej / Fløjlsgræsset) 18:25
Højby 18:35
Húsið opnar 18:00 og byrjar borðhald rúmlega klukkustund síðar.
Þeir sem ekki hafa pantað sér miða á blótið sjálft geta keypt sér miða á ballið við inngang og kostar það 150 dkk. Húsið opnar fyrir þá sem ætla á ballið kl.22:30.
Íslenzka sveitin heldur uppi fjörinu fram á nótt, og klukkan 02:30 kemur rútan aftur og keyrir sama rúnt til baka og er sama verð.
Munið að taka með ykkur pening, þar sem við tökum ekki við kortum.
Hlökkum til að sjá ykkur á blótinu/ballinu Þorrablótsnefnd IFO 2010


#1 by Sigridur og Omar on March 4, 2010 - 06:50
Kæra Torrablótsnefnd. Vid viljum takka innilega fyrir afspyrnu gott og skemmtilegt Torrablót í ár. Bordhaldid var sérstaklega skemmtilegt med frábærum veislustjóra og hressum skemmtikrøftum. Vid óskum ad tessi káti piltur Ingvar verdi rádinn til ad stýra bordhaldi aftur næsta ár!! Og maturinn var sérstaklega bragdgódur og pent framreiddur, einnig borddekkning. Allt til ad gefa jákvæd áhrif. Tónlistin var líka ljómandi gód en bara allt of hátt spilad eins og oft verdur raunin á. Vid vorum ad drepast í hálsinum af ad arga á tad fólk sem vid reyndum ad spjalla vid og med tínitus í eyrunum af arginu á móti!! Allir sem vid høfum talad vid eru ánægdir med blótid, bestu kvedjur og hrós fyrir frábæra frammistødu og dugnad. Sigga og Ómar.