Kaup á bíl utan Danmerkur
Afgift ferli á bíl frá Þýskalandi, Svíþjóð eða Íslandi.
Flytja inn bíl:
1. Það fyrsta sem þarf að hafa í huga þegar bíll er fluttur inn til Danmerkur er að hafa skráningarskírteini bílsins fra fyrra landi, del 1 og 2. Del 1 og 2 geta verið bæði á einu blaði eða sitt hvoru, mismunandi eftir löndum. Skráningarskírteinið þarf ekki endilega að vera skráð á innflutningsaðila, má vera skráningarskírteini frá fyrri eiganda.
2. Áður en hægt er að borga afgift af bíl þarf að fara með bílinn í almenna- og tollskoðun á viðurkenndri skoðunarstöð. Hér er listi yfir skoðunarstöðvar: http://www.fstyr.dk/sw25005.asp, einnig er hægt að fara á Applus Bilsyn stöðvar alls staðar í Danmörku, http://www.applusbilsyn.dk/synshaller/. Í Odense er mjög góð stöð sem heitir BilsynFyn, þeir eru ekki stór keðja heldur vinna eigendurnir sjálfir á stöðinni og eru tilbúnir að svara ýmsum spurningum sem maður hefur. http://www.bilsynfyn.dk/default.shtml
Þar fer bíllinn í gegnum bæði tollskoðun og almenna skoðun, þar sem ástand bílsins er skoðað, ásamt aukabúnaði, og hvort að kílómetratalan stemmi við þjónustubókina ásamt fleiru.
-Það sem þarf að hafa meðferðis á skoðunarstöðina er erlenda skráningarskírteinið (del I og II).
3. Þegar bíllinn hefur fengið skoðun, þá fer maður niður á Told og Skat skrifstofu. Það skiptir ekki máli hvaða skrifstofu maður fer á, en sjálf afgreiðslan og útreikningurinn á afgiftinni fer fram á fjórum stöðum:
1: Skattecenter Høje Taastrup
2: Skattecenter Odense
3: Skattecenter Århus
4: Skattecenter Aalborg
Heimilisfangið í Odense er:
Nummerpladeekspedition Odense
Østerbro 7
5000 Odense C
Tlf: 7222 1818
Fax: 7222 1919
Linkur á heimasíðu Told og skat:
http://www.skat.dk/
4. Á Told og skat fyllir maður út alla nauðsynlega pappíra, einnig er hægt að prenta þá út áður en maður fer þangað:
- Tilkynningu (anmeldelse blanket 21.016)
- Forespørgsel om værdifastsættelse af et brugt køretøj.
Einnig þarf maður að hafa meðferðis:
- Erlenda skráningarskírteinið af bílnum
- Vottorð frá tryggingarfélaginu sem maður ætlar að tryggja hjá, kallað “forsikringsbevis”. Það getur verið mjög gott að fá pappíra frá Íslandi sem segir hversu lengi maður hefur keyrt tjónalaust, þetta getur gefið góðan afslátt á tryggingar og er gott að hafa samband við fleiri en eitt tryggingafélag því að verð eru mjög mismunandi. Tryggingarfélag sem eru t.d. með ódýra almenna tryggingu geta verið dýrir í kaskótryggingu.
- Pappíra um að bíllinn hafi fengið skoðun.
- Vottorð frá skóla (ef maður ætlar að borga afgiftina á þriggja mánaða fresti, eða svokallaðri 8 ára reglu, “kvartals afgift”)
- Einnig getur verið gott ráð að finna ódýrasta sambærilega bílinn á www.dba.dk eða www.bilbasen.dk og prenta það út til að hafa með sér niður í skat.
5. Þegar öll pappírsvinna er frágengin, þarf maður að borga út afgiftina eða fyrstu greiðsluna ef maður setti bílinn á 8 ára regluna.
Einnig þarf maður að kaupa númeraplötur sem kosta 1.180 kr og depositum.
6. Þegar maður hefur fengið útreikninga í hendurnar um hvað maður þarf að borga í afgift, getur maður kært þann úrskurð ef manni finnst afgiftin vera of há.
Þá þarf maður að fara með bílinn til einhvers af þeim fjórum Skattecenter nefnd að ofan og sýna hann. Þar fer maður inn í afgreiðslu og biður um að fá einhvern til að skoða bílinn og leggja mat á hann. Hér er bíllinn skoðaður hátt og lágt, og er þá gott að segja frá öllu sem er að, stóru sem smáu. Því að það fær afgiftina til að lækka.
Það eru samt misjöfn svör sem maður fær um hvernig þetta áfrýjunarferli virki. T.d. á heimasíðu Skat stendur að maður þurfi að senda inn skriflega kvörtun, en hef heyrt að hitti virki líka.
Fyrir nánari upplýsingar er hægt skoða þessa heimasíðu: http://www.skat.dk/SKAT.aspx?oID=166038
Selja bíl, sem er á 8 ára reglunni eða með “kvartals afgift”:
Hér eru tvær leiðir í boði:
1. Selja bílinn fyrir utan afgift:
Að selja bíl “uden afgift” þýðir að bíllinn er aðeins seldur, og kaupandi á þá eftir að borga afgift af bílnum. Þá afhendir maður bara bílinn án númera og kaupandi þarf að kaupa sér svokallaðar dagsplötur, sem kosta 100 kr. á dag.
Númeraplötunum skilar maður svo niður á næstu SKAT skrifstofu ásamt toldattest pappírunum sem maður fékk í byrjun þegar maður setti bílinn á númer.
Í upphafi þegar þú fékkst afgiftina á bílinn þá borgaðir þú tryggingafé (depositum), þetta tryggingafé færð þú svo til baka þegar þú skilar inn númeraplötunum.
Kosturinn við þessa leið er að þarna sleppur maður við eiginlega alla pappírsvinnu. Það eina sem þú þarft að gera er að skila númeraplötunum inn ásamt toldattesten og nýji eigandinn þarf þá að fara í gegnum allt ferlið að ofan “kaupa bíl” upp á nýtt.
2. Selja bílinn með afgift:
Þessi leið er upp að vissu marki hagstæðari fyrir kaupandann á bílnum en pappírsvinnan er meiri. Þegar ég segi hagstæðari þá meina ég:
i. Að öll undirbúningsvinna er búin.
ii. Kaupandinn þarf ekki að fara með bílinn í skoðun til að fá hann yfirfærðan á sitt nafn.
iii. Kaupandinn þarf ekki að kaupa sér nýjar númeraplötur, hérna er bara höfð nafnaskipti á bílnum.
Hér eins og ég sagði er pappírsvinnan meiri og getur einnig tekið lengri tíma. En þessi leið getur verið betri fyrir kaupandann þar sem að kostnaður getur verið minni og minni pappírsvinna. Sérstaklega ef að bíllinn sem keyptur er hefur fengið endurmetið afgiftina og hún verið lækkuð.
Kaupandinn á bílnum þarf að fara niður á SKAT skrifstofu með vottorð um skólavist, forsikringsbevis frá tryggingarfélaginu og skráningarskírteinið af bílnum.
Hérna þarf sá sem selur bílinn einnig að útbúa pappír sem segir að tilvonandi kaupandi af bílnum megi yfirtaka tryggingaféið (depositum) sem hann borgaði í byrjun.


