Posts Tagged Aðalfundur
Aðalfundur
Aðalfundur Íslendingafélagsins í Odense fyrir árið 2010 verður haldinn 20. Mars næstkomandi. Fundurinn verður haldinn í Grænlendingahúsinu og byrjar hann klukkan 15:00.
Íslendingafélagið hefur verið í miklum vexti síðustu mánuði og frábært að vinna með þeim meðbyr sem hefur verið undanfarið. Frábært væri því að fá sem flesta til að mæta sem tilbúnir eru að hjálpa til með næsta starfsár. Okkur vantar til að mynda fólk í nefndir félagsins til að hjálpa við þá fjölmörgu atburði ársins sem félagið býður upp á.
Nefndir félagsins eru:
- Fjölskyldunefnd
- Íþróttanefnd
- Skemmtinefnd
- Þorrablótsnefnd
Það er alltaf hægt að gera gott félag enn betra, og því hvetjum við alla til að mæta og skrá sig til að hjálpa í þessar nefndir.
Allir sem mæta á fundinn fá bjórmiða fyrir einum bjór sem gildir á Bjórkvöld sem haldið er seinna um kvöldið uppá Raski.
Sjáumst hress þann 20. mars.
Kveðja,
Stjórn IFO.
Frábær Fundur
Sælir kæru félagsmenn.
Þá er “Aðalfundur” liðinn og vorum við í stjórninni mjög ánægð með hversu margir sáu sér fært um að mæta, þó að við viljum alltaf sjá fleiri.
Aðalfundur gekk mjög vel og voru nýju lögin, sem við þurftum að breyta til að fá félagið góðkennt af komúnunni, samþykkt með miklum meirihluta. Einnig voru lagðar fram breytingar á félagsgjöldum sem hafa lækkað, en breytust á þann hátt að nú þurfa börn einnig að borga. Voru breytingar á félagsgjöldum einnig samþykkt með góðum meirihluta. Svo var ný stjórn kosinn og er hún eftirfarandi:
- Formaður Elías Örn Bergsson
- Varaformaður Kristín Elfa Björnsdóttir
- Gjaldkeri Sigríður Vigdís Þórðardóttir
- Ritari Borghildur Ýr
- Byrgðavörður Áslaug Ýr Jóelsdóttir
- Formaður Íþróttanefndar Theodór Jónsson
- Formaður Fjölskyldunefndar Rósa Munda Sævarsdóttir
- Formaður Skemmtinefndar Hrund Scheving / Helga Jóhannsdóttir
Hægt verður að sjá fundargerð aðalfundsins hér á síðunni og þá atburði sem boðið er uppá á félagsárinu má sjá hér.
Svo eftir fundinn var haft ofan af fyrir börnunum og svo um kvöldið kom fullorða fólkið og þurfti að hafa aðeins meira ofan af fyrir þeim.
Við viljum þakka öllum fyrir frábæran dag og kvöld.
Kveðja, (Ný) Stjórn IFO.
Aðalfundur-Kynningardagur/kvöld
Aðalfundur Íslendingafélagsins í Odense verður haldinn laugardaginn 24.Október kl.14:00 í fælleshúsinu að Ørbækvej 713 5220 Odense SØ. Í boði á aðalfundi verða íslenskir snúðar, kaffi og djús. Þeir sem mæta á aðalfundinn fá frían bjór og skot um kvöldið.
Viljum við byðja fólk um að skoða vel þær breytingar á lögum félagsins sem lagðar verða fram á fundinum.
Á eftir aðalfundi verður kynningardagur með skemmtun fyrir börnin þar sem farið verður meðal annars í leiki með þeim yngstu. Til sölu verður gos og íslenskt nammi.
Svo um kvöldið kl.20:00 verður kynningarkvöld fyrir fullorðna og verður útileguþema og byðjum við fólk að mæta í útilegufötunum, ullarpeysu, gúmmítúttum, loppahosum, tíkó, fléttur, gítar og rollu.
Skemmtilegt væri að fá sem flesta til að mæta sem tilbúnir eru að hjálpa á starfsárinu.Okkur vantar bæði fólk í nefndir til að hjálpa við þá fjölmörgu atburði ársins sem félagið býður upp á og einnig eru nokkrar stöður að losna í stjórn:
- Ritari
- Birgðarstjóri
- Formaður fjölskyldunefndar
- Formaður skemmtinefndar
Kveðja, Stjórn IFO.
Aðalfundur

Aðalfundur Íslendingafélagsins í Odense verður haldinn laugardaginn 24.Október. Húsnæði verður auglýst síðar.
Á eftir aðalfundi verður skemmtun fyrir börnin þar sem farið verður meðal annars í leiki með þeim yngstu. Svo um kvöldið verður skemmtun fyrir fullorðna og verður dansað eitthvað frameftir.
Viljum við byðja fólk um að skoða vel breytingar á lögum félagsins.
Skemmtilegt væri að fá sem flesta til að mæta sem tilbúnir eru að hjálpa á starfsárinu.Okkur vantar bæði fólk í nefndir til að hjálpa við þá fjölmörgu atburði ársins sem félagið býður upp á og einnig eru nokkrar stöður að losna í stjórn:
- Ritari
- Birgðarstjóri
- Formaður fjölskyldunefndar
Aðalfundur IFO
Aðalfundur IFO verður haldin 24.Október


