Posts Tagged ball

Þorrablót/ball

Þorrablót IFO er haldið 27.febrúar í Højby forsamlingshus, sama stað og fyrri ár.

Þeir sem hafa tryggt sér miða geta tekið rútu, sem kostar litlar 30kr á mann, sem keyrir um alla Odense, sjá rútuplan:

Rasmus Rask Kollegi                                        17:15

Danske bank Næsbyhovedvej 1                         17:25

Rutebilstationen Dannebrogsgade                      17:50

Shell Hjallesevej  /  Jagtvej                              18:00

Texaco Hjallesevej / Landbrugsvej                   18:10

Statoil Odensevej / Svendborgvej                     18:15

Fraugde (Fraugde Radby vej / Fløjlsgræsset)     18:25

Højby                                                                                                            18:35

Húsið opnar 18:00 og byrjar borðhald rúmlega klukkustund síðar.

Þeir sem ekki hafa pantað sér miða á blótið sjálft geta keypt sér miða á ballið við inngang og kostar það 150 dkk. Húsið opnar fyrir þá sem ætla á ballið kl.22:30.

Íslenzka sveitin heldur uppi fjörinu fram á nótt, og klukkan 02:30 kemur rútan aftur og keyrir sama rúnt til baka og er sama verð.

Munið að taka með ykkur pening, þar sem við tökum ekki við kortum.

Hlökkum til að sjá ykkur á blótinu/ballinu
Þorrablótsnefnd IFO 2010

, , ,

1 Comment

Aðalfundur

Lydveldishatid1944

Aðalfundur Íslendingafélagsins í Odense verður haldinn laugardaginn 24.Október. Húsnæði verður auglýst síðar.

Á eftir aðalfundi verður skemmtun fyrir börnin þar sem farið verður meðal annars í leiki með þeim yngstu. Svo um kvöldið verður skemmtun fyrir fullorðna og verður dansað eitthvað frameftir.
Viljum við byðja fólk um að skoða vel breytingar á lögum félagsins.

Skemmtilegt væri að fá sem flesta til að mæta sem tilbúnir eru að hjálpa á starfsárinu.Okkur vantar bæði fólk í nefndir til að hjálpa við þá fjölmörgu atburði ársins sem félagið býður upp á og einnig eru nokkrar stöður að losna í stjórn:

  • Ritari
  • Birgðarstjóri
  • Formaður fjölskyldunefndar
Sjáumst hress þann 26.Okt.
Kveðja,
Stjórn IFO

, , ,

No Comments