Posts Tagged Bjór

Póker

poker

Þá er komið að fjórða Pókermóti IFO.

Pókermótið verður haldið í fælleshúsinu við Hørmarken (rétt við Bjørnemosen og Solsikkemarken) laugardaginn 31.október kl.20:00 og spilað verður í Texas Hold’em stílnum.

Verðlaunin verða ekki af verri endanum:
1.verðlaun eru 30% af pottinum + bikar :-)

2.verðlaun eru 20% af pottinum.

3.verðlaun eru 10% af pottinum.

 
Spilað verður á 5-6 borðum í fyrstu umferð og fara svo vinningshafar frá hverju borði yfir á úrslitaborðið og keppa um aðalverðlaunin.

Reglur:
Stóri og litli blindur byrja í 5 og 10 í fyrstu umferð, en 25 og 50 í úrslitum.

Stóri og litli blindur hækka um eitt peningagildi eða helming á 15 mín. fresti.

Eina svarið við All-in er All-in. Það þýðir að ef einhver sem á lítið af peningum segir All-in og næsti á eftir á meiri pening þá getur hann ekki bara jafnað heldur verður að setja All-in. Þar með er hann að taka þá áhættu að kannski kemur sá næsti á eftir honum með meiri pening en hann og settur All-in líka.
Ef þú átt ekki efni á minnstu gjöf þá getur þú ekki sagt All-in, þá er eingöngu hægt að spila með.

Mótsgjald:
100 fyrir félagsmenn IFO
150 fyrir aðra
Frítt fyrir áhorfendur

Nú er ekkert annað en All-in, Það er við vonumst til að sjá sem flesta.

Kveðja, Stjórn IFO.

, , ,

No Comments

Aðalfundur-Kynningardagur/kvöld

irfundurAðalfundur Íslendingafélagsins í Odense verður haldinn laugardaginn 24.Október kl.14:00 í fælleshúsinu að Ørbækvej 713 5220 Odense SØ. Í boði á aðalfundi verða íslenskir snúðar, kaffi og djús. Þeir sem mæta á aðalfundinn fá frían bjór og skot um kvöldið.

Viljum við byðja fólk um að skoða vel þær breytingar á lögum félagsins sem lagðar verða fram á fundinum.

Á eftir aðalfundi verður kynningardagur með skemmtun fyrir börnin þar sem farið verður meðal annars í leiki með þeim yngstu. Til sölu verður gos og íslenskt nammi.

 Svo um kvöldið kl.20:00 verður kynningarkvöld fyrir fullorðna og verður útileguþema og byðjum við fólk að mæta í útilegufötunum, ullarpeysu, gúmmítúttum, loppahosum, tíkó, fléttur, gítar og rollu.

Skemmtilegt væri að fá sem flesta til að mæta sem tilbúnir eru að hjálpa á starfsárinu.Okkur vantar bæði fólk í nefndir til að hjálpa við þá fjölmörgu atburði ársins sem félagið býður upp á og einnig eru nokkrar stöður að losna í stjórn:

  • Ritari
  • Birgðarstjóri
  • Formaður fjölskyldunefndar
  • Formaður skemmtinefndar

Kveðja, Stjórn IFO.

, , , ,

No Comments

Ísland – Danmörk

Áfram Ísland

,

No Comments