Posts Tagged Fjóni

Halló Odense

ScrWeeMad_smJæja!!!

Þá er loksins komið nýtt útlit á þessa annars frábæru heimasíðu. Það hefur kostað blóð svita og tár að koma henni í gagnið, en það gekk loksins eftir.

Með nýju útliti heimasíðurnar viljum við í stjórninni sína fram á hvað það er sem við ætlum okkur að gera fyrir þetta frábæra félag okkar íslendinga á Fjóni. Það sem við munum kynna hér í dagatalinu til hliðar eru allir atburðir á vegum félagsins.  Atburðum hefur fjölgað mikið milli ára og er ætlunin að hafa fjóra atburði að meðaltali á mánuði. Þetta er fyrir utan vikulega atburði, sem eru fótbolti fyrir karla, brennó fyrir konur, barnaleikfimi og körfubolti fyrir karla.

Að lokum viljum við þakka Björgvin frábærlega fyrir að leggja sitt blóð, svita og tár í að gera þessa frábæru heimasíðu fyrir okkur. Einnig viljum við þakka öllum félagsmönnum á Fjóni fyrir að sýna okkur þá þolinmæði að hafa enga heimasíðu yfir sumartímann.

Kveðja, Stjórnin.

, , , , ,

No Comments