Posts Tagged Frítt
Keila

Næstkomandi laugardag, 7. nóvember, verður farið í keilu fyrir börn og unglinga. Farið verður í Bowl n’ Fun, Grønløkken 3, og spiluð keila milli kl.14:00 og 15:00. Við höfum tekið frá 3 brautir og verður skipt niður á þær eftir aldursflokkum. Til þess að við getum byrjað stundvíslega kl.14:00 þá þarf að mæta í síðasta lagi kl.13:30. Ef þið sjáið ykkur ekki fært um það að mæta fyrir þann tíma, sendið þá email á ferrari@internet.is með nafni keppanda og aldur.
Frítt er fyrir félagsbörn en 40 kr,- fyrir aðra. Þetta er fyrir utan skóleigu sem allir þurfa að greiða og er hún 14 kr.-
Hlökkum til að sjá ykkur,
Stjórn IFO.


