Posts Tagged fundur

Fjárhagsmál Íslands

Aðdragandi og framtíðarhorfur.

Sendiherra Íslands Sturla Sigurjónsson og Tryggvi Felixson deildarstjóri hjá Norrænu Ráðherranefndinni hafa framsögu um málið  á fundi sem haldinn verður þriðjudaginn 27. apríl kl. 19.30  í  húsi Fyens Stiftstidende við Banegårdspladsen (á móti Odense Banegårdcenter).

Hinn þekkti Íslandsvinur Bent A. Koch er fundarstjóri.

Hérbúandi Íslendingar og annað áhugafólk um málefni Íslands er hvatt til fundarins.

Aðgangur og veitingar í fundarhléi er ókeypis  –  en tilkynna þarf þáttöku í síma 66 11 11 11  sem fyrst  –   takmarkaður sætafjöldi.

IFOdense og Norrænafélagið standa að fundinum ásamt Klubfyn dk.

, , , ,

No Comments

Aðalfundur

Lydveldishatid1944

Aðalfundur Íslendingafélagsins í Odense verður haldinn laugardaginn 24.Október. Húsnæði verður auglýst síðar.

Á eftir aðalfundi verður skemmtun fyrir börnin þar sem farið verður meðal annars í leiki með þeim yngstu. Svo um kvöldið verður skemmtun fyrir fullorðna og verður dansað eitthvað frameftir.
Viljum við byðja fólk um að skoða vel breytingar á lögum félagsins.

Skemmtilegt væri að fá sem flesta til að mæta sem tilbúnir eru að hjálpa á starfsárinu.Okkur vantar bæði fólk í nefndir til að hjálpa við þá fjölmörgu atburði ársins sem félagið býður upp á og einnig eru nokkrar stöður að losna í stjórn:

  • Ritari
  • Birgðarstjóri
  • Formaður fjölskyldunefndar
Sjáumst hress þann 26.Okt.
Kveðja,
Stjórn IFO

, , ,

No Comments

Aðalfundur IFO

Aðalfundur IFO verður haldin 24.Október

,

No Comments