Posts Tagged IFO

Aðalfundur-Kynningardagur/kvöld

irfundurAðalfundur Íslendingafélagsins í Odense verður haldinn laugardaginn 24.Október kl.14:00 í fælleshúsinu að Ørbækvej 713 5220 Odense SØ. Í boði á aðalfundi verða íslenskir snúðar, kaffi og djús. Þeir sem mæta á aðalfundinn fá frían bjór og skot um kvöldið.

Viljum við byðja fólk um að skoða vel þær breytingar á lögum félagsins sem lagðar verða fram á fundinum.

Á eftir aðalfundi verður kynningardagur með skemmtun fyrir börnin þar sem farið verður meðal annars í leiki með þeim yngstu. Til sölu verður gos og íslenskt nammi.

 Svo um kvöldið kl.20:00 verður kynningarkvöld fyrir fullorðna og verður útileguþema og byðjum við fólk að mæta í útilegufötunum, ullarpeysu, gúmmítúttum, loppahosum, tíkó, fléttur, gítar og rollu.

Skemmtilegt væri að fá sem flesta til að mæta sem tilbúnir eru að hjálpa á starfsárinu.Okkur vantar bæði fólk í nefndir til að hjálpa við þá fjölmörgu atburði ársins sem félagið býður upp á og einnig eru nokkrar stöður að losna í stjórn:

  • Ritari
  • Birgðarstjóri
  • Formaður fjölskyldunefndar
  • Formaður skemmtinefndar

Kveðja, Stjórn IFO.

, , , ,

No Comments