Posts Tagged Jól

Jólasveinar í Odense 24.des

jolasveinar13Þó að jólasveinarnir séu ekki enn komnir til byggða, þá höfum við hjá IFO náð sambandi við nokkra af þeim bræðrum. Tveir bræðranna ætla að gera sér ferð hingað til Odense þann 24.desember og heilsa upp á þau börn sem geta ekki hitt þá á Íslandi í ár. Hafa þeir beðið okkur um að setja upp plan fyrir sig sem er frá 10:00-14:00 þann 24.desember og geyma pakkana sem þeir ætla að gefa börnunum. Foreldrar eru beðnir um að senda pantanir á email elvabrey@internet.is og segja ef það eru sérstakar óskir um sérstakan tíma (verður reynt eftir bestu getu að koma til móts við þær). Móttaka á pökkunum verður að Østergårdsparken 16, 5220 Odense fyrir 21. desember. Svo að sveinkarnir þurfa ekki að standa undir neinum kostaði sjálfir verður verð á heimsókn 50,-dkk. en frítt er fyrir félagsbörn.

Kveðja,

Stjórn IFO.

, , ,

No Comments

Piparkökumálun

piparkökur

Næstkomandi Laugardag, 5.desember, verður piparkökumálun fyrir börnin í samkomuhúsi Tornbjergkirkju, Skærmhatten 1, 5220 Odense SØ, frá klukkan 12:00 til 15:00. Boðið verður upp á heitt súkkulaði, kaffi og djús með piparkökunum.

Frítt er fyrir félagsbörn en 20kr,- fyrir önnur börn. Innifalið í verði eru piparkökur og glassúr til að skreyta þær.

Fjölmennum og málum piparkökur saman undir íslenskri jólatónlist.

Kveðja,
Stjórnin.

, ,

No Comments

Jólabókin í ár í sölu- aðeins 500kr. stk

JólabókTil sölu jólabókin “Er nálgast jólin, sveinar koma….” á aðeins 500kr.stk.   

                   Þetta er falleg  16 bls. vísnabók um jólasveinanna okkar þrettán sem koma alltaf rétt fyrir jólin og gefa eitthvað gott í skó.

Á hverri síðu er vísa um hvern og einn jólasvein sem er tilvalið að lesa kvöldi áður eða daginn eftir að viðkomandi jólasveinn er búinn að gefa í skóinn. Einnig eru fallegar myndir af jólasveinunum sem hægt er að lita af vild. Neðst á hverri síðu er svo auð lína til að skrifa niður hvað viðkomandi jólasveinn gaf í skóinn þann daginn.

 

Falleg vísnabók fyrir alla að eiga, fallegar myndir til að lita og eiguleg minningarbók fyrir börn að eiga um þennan skemmtilega tíma þegar jólasveinarnir fara að koma til byggða.

Kostar aðeins 500kr. stk    ….sendum hvert sem er (viðbætist sendingakostnaður)

 

Til að panta bókina eru ýmsar leiðir í boði;                                                                                                                                               

-Hægt er að hafa samband við Katrínu Ruth Þorgeirsdóttur í síma 845 1405 eða senda mail á kataruth@gmail.com ,einnig er hún með síðu á facebook (Katrín Ruth)                                                                       

……eða hafa samband við fyrirtækið - Garðbúann ehf í síma 618 0557, senda mail á prenta@gardbuinn.is  eða fara á facebooksíðu fyrirtækisins (Garðbúinn ehf)

Með von um góð viðbrögð og kærri jólakveðju

Katrín Ruth og Garðbúinn ehf

, ,

No Comments