Posts Tagged Kosningar

Frábær Fundur

83407112_6tdWaOyuSælir kæru félagsmenn.

Þá er “Aðalfundur” liðinn og vorum við í stjórninni mjög ánægð með hversu margir sáu sér fært um að mæta, þó að við viljum alltaf sjá fleiri.

Aðalfundur gekk mjög vel og voru nýju lögin, sem við þurftum að breyta til að fá félagið góðkennt af komúnunni, samþykkt með miklum meirihluta. Einnig voru lagðar fram breytingar á félagsgjöldum sem hafa lækkað, en breytust á þann hátt að nú þurfa börn einnig að borga. Voru breytingar á félagsgjöldum einnig samþykkt með góðum meirihluta. Svo var ný stjórn kosinn og er hún eftirfarandi:

  • Formaður                           Elías Örn Bergsson
  • Varaformaður                     Kristín Elfa Björnsdóttir
  • Gjaldkeri                            Sigríður Vigdís Þórðardóttir
  • Ritari                                  Borghildur Ýr
  • Byrgðavörður                      Áslaug Ýr Jóelsdóttir 
  • Formaður Íþróttanefndar      Theodór Jónsson
  • Formaður Fjölskyldunefndar Rósa Munda Sævarsdóttir
  • Formaður Skemmtinefndar   Hrund Scheving / Helga Jóhannsdóttir

Hægt verður að sjá fundargerð aðalfundsins hér á síðunni og þá atburði sem boðið er uppá á félagsárinu má sjá hér.

Svo eftir fundinn var haft ofan af fyrir börnunum og svo um kvöldið kom fullorða fólkið og þurfti að hafa aðeins meira ofan af fyrir þeim. :-)

Við viljum þakka öllum fyrir frábæran dag og kvöld.

Kveðja, (Ný) Stjórn IFO.

, , ,

No Comments