Posts Tagged Nefndir
Aðalfundur
Aðalfundur Íslendingafélagsins í Odense fyrir árið 2010 verður haldinn 20. Mars næstkomandi. Fundurinn verður haldinn í Grænlendingahúsinu og byrjar hann klukkan 15:00.
Íslendingafélagið hefur verið í miklum vexti síðustu mánuði og frábært að vinna með þeim meðbyr sem hefur verið undanfarið. Frábært væri því að fá sem flesta til að mæta sem tilbúnir eru að hjálpa til með næsta starfsár. Okkur vantar til að mynda fólk í nefndir félagsins til að hjálpa við þá fjölmörgu atburði ársins sem félagið býður upp á.
Nefndir félagsins eru:
- Fjölskyldunefnd
- Íþróttanefnd
- Skemmtinefnd
- Þorrablótsnefnd
Það er alltaf hægt að gera gott félag enn betra, og því hvetjum við alla til að mæta og skrá sig til að hjálpa í þessar nefndir.
Allir sem mæta á fundinn fá bjórmiða fyrir einum bjór sem gildir á Bjórkvöld sem haldið er seinna um kvöldið uppá Raski.
Sjáumst hress þann 20. mars.
Kveðja,
Stjórn IFO.


